YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 17

17
Uppþot í Þessaloníku
1Þeir fóru nú um Amfípólis og Apollóníu og komu til Þessaloníku. Þar áttu Gyðingar samkundu. 2Eftir venju sinni gekk Páll inn til þeirra og þrjá hvíldardaga ræddi hann við þá og lagði út af ritningunum, 3lauk þeim upp fyrir þeim og setti þeim fyrir sjónir að Kristur átti að líða og rísa upp frá dauðum. Hann sagði: „Jesús, sem ég boða ykkur, hann er Kristur.“ 4Nokkrir þeirra létu sannfærast og gengu til fylgis við Pál og Sílas, auk þess mikill fjöldi guðrækinna Grikkja og mikils háttar konur eigi allfáar.
5En Gyðingar fylltust ofstæki og fengu með sér götuskríl, æstu til uppþota og hleyptu borginni í uppnám. Þustu þeir að húsi Jasonar og vildu færa Pál og Sílas fyrir borgarafund. 6En þegar þeir fundu þá ekki drógu þeir Jason og nokkra bræður fyrir borgarstjórana og hrópuðu: „Mennirnir, sem komið hafa allri heimsbyggðinni í uppnám, eru nú komnir hingað 7og Jason hefur tekið á móti þeim. Allir þessir breyta gegn boðum keisarans því þeir segja að annar sé konungur og það sé Jesús.“ 8Og þeir vöktu óhug með fólkinu og einnig borgarstjórunum með þessum orðum. 9Slepptu þeir ekki þeim Jasoni fyrr en þeir höfðu látið þá setja tryggingu.
10En söfnuðurinn#17.10 Orðrétt: bræðurnir. sendi þá Pál og Sílas þegar um nóttina til Beroju. Þegar þeir komu þangað gengu þeir inn í samkunduhús Gyðinga. 11Þeir voru veglyndari þar en í Þessaloníku. Þeir tóku við orðinu með mesta áhuga og rannsökuðu daglega ritningarnar, hvort þessu væri þannig farið. 12Margir Gyðingar tóku trú og einnig Grikkir ekki allfáir, tignar konur og karlar. 13En er Gyðingar í Þessaloníku fréttu að Páll hefði einnig boðað orð Guðs í Beroju egndu þeir líka múginn þar til uppþota. 14Þá sendi söfnuðurinn#17.14 Orðrétt: bræðurnir. jafnskjótt Pál af stað til sjávar en Sílas og Tímóteus urðu eftir. 15Leiðsögumenn Páls fylgdu honum allt til Aþenu og sneru aftur með boð til Sílasar og Tímóteusar að koma hið bráðasta til hans.
Páll í Aþenu
16Meðan Páll beið þeirra í Aþenu var honum mikil skapraun að sjá að borgin var full af skurðgoðum. 17Hann ræddi þá í samkundunni við Gyðinga og guðrækna menn og daglega á torginu við þá sem urðu á vegi hans. 18En nokkrir heimspekingar, Epíkúringar og Stóumenn, áttu og í orðakasti við hann. Sögðu sumir: „Hvað mun skraffinnur sá hafa að flytja?“
Aðrir sögðu: „Hann virðist boða ókunna guði,“ því að hann flutti fagnaðarerindið um Jesú og upprisuna. 19Og þeir tóku hann og fóru með hann á Aresarhæð#17.19 Eða: fram fyrir Areopagus-dóminn, sbr. Post 17.34. og sögðu: „Getum við fengið að vita hver þessi nýja kenning er sem þú ferð með? 20Því að eitthvað nýstárlegt flytur þú okkur til eyrna og okkur fýsir að vita hvað þetta er.“ 21En allir Aþeningar og aðkomumenn þar gáfu sér ekki tóm til annars fremur en að segja eða heyra einhver nýmæli.
22Þá sté Páll fram á miðri Aresarhæð og tók til máls: „Aþeningar, þið komið mér svo fyrir sjónir að þið séuð í öllum greinum miklir trúmenn 23því að ég gekk hér um og hugði að helgidómum ykkar og fann þá meðal annars altari sem á er ritað: Ókunnum guði. Þetta sem þið nú dýrkið og þekkið ekki, það boða ég ykkur. 24Guð, sem skóp heiminn og allt sem í honum er, hann, sem er herra himins og jarðar, býr ekki í musterum sem með höndum eru gerð. 25Ekki verður honum heldur þjónað með höndum manna, eins og hann þyrfti nokkurs við, þar sem hann sjálfur gefur öllum líf og anda og alla hluti. 26Hann skóp og af einum allar þjóðir manna og lét þær byggja allt yfirborð jarðar er hann hafði ákveðið setta tíma og mörk bólstaða þeirra. 27Hann vildi að þær leituðu Guðs ef verða mætti þær þreifuðu sig til hans og fyndu hann. En eigi er hann langt frá neinum af okkur. 28Í honum lifum, hrærumst og erum við. Svo hafa og sum skáld ykkar sagt: Því að við erum líka hans ættar. 29Fyrst við erum nú Guðs ættar megum við eigi ætla að guðdómurinn sé líkur smíði af gulli, silfri eða steini, gerðri með hagleik og hugviti manna. 30Guð hefur umborið vanvisku liðinna tíma. En nú boðar hann mönnum hvarvetna að allir skuli snúa sér til hans 31því að hann hefur sett dag er hann mun láta mann, sem hann hefur fyrirhugað, dæma heimsbyggðina með réttvísi. Þetta hefur hann sannað öllum mönnum með því að reisa hann frá dauðum.“
32Þegar þeir heyrðu nefnda upprisu dauðra gerðu sumir gys að en aðrir sögðu: „Við munum hlusta á þetta hjá þér öðru sinni.“ 33Þannig skildi Páll við þá. 34En nokkrir menn slógust í fylgd hans. Þeir tóku trú. Meðal þeirra var Díónýsíus, einn úr Areopagus-dóminum, og kona nokkur, Damaris að nafni, og aðrir fleiri.

Currently Selected:

Postulasagan 17: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy