YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 16

16
Tímóteus
1Páll kom til Derbe og Lýstru. Þar var lærisveinn nokkur, Tímóteus að nafni, sonur trúaðrar konu af Gyðinga ætt en faðir hans var grískur. 2Kristnir menn#16.2 Orðrétt: Bræðurnir. í Lýstru og Íkóníum báru honum gott orð. 3Páll vildi hafa hann með sér og umskar hann sökum Gyðinga er voru í þeim byggðum því að allir vissu þeir að faðir hans var grískur.
4Þeir fóru nú um borgirnar, fluttu mönnum þær ályktanir sem postularnir og öldungarnir í Jerúsalem höfðu samþykkt og buðu að varðveita þær. 5En söfnuðirnir styrktust í trúnni og urðu fjölmennari dag frá degi.
Til Makedóníu
6Þeir fóru um Frýgíu og Galataland því heilagur andi varnaði þeim að boða orðið í Asíu. 7Og sem þeir voru komnir að Mýsíu reyndu þeir að fara til Biþýníu en andi Jesú leyfði það eigi. 8Þeir fóru þá um Mýsíu og komu niður til Tróas. 9Um nóttina birtist Páli sýn: Maður nokkur makedónskur stóð hjá honum og bað hann: „Kom yfir til Makedóníu og hjálpa okkur!“ 10En jafnskjótt og hann hafði séð þessa sýn leituðum við færis að komast til Makedóníu þar sem við skildum að Guð hafði kallað okkur til þess að flytja þeim fagnaðarerindið.
Í Filippí
11Nú lögðum við út frá Tróas, sigldum beint til Samóþrake en daginn eftir til Neapólis 12og þaðan til Filippí. Hún er helsta borg í þessum hluta Makedóníu, rómversk nýlenda. Í þeirri borg dvöldumst við nokkra daga. 13Hvíldardaginn gengum við út fyrir hliðið að á einni en þar hugðum við vera bænastað. Settumst við niður og töluðum við konurnar sem voru þar saman komnar. 14Kona nokkur úr Þýatíruborg, sem sótti samkundu Gyðinga, Lýdía að nafni, er verslaði með purpura, hlýddi á. Opnaði Drottinn hjarta hennar og hún tók við því sem Páll sagði. 15Hún var skírð og heimili hennar og hún bað okkur: „Gangið inn í hús mitt og dveljist þar fyrst þið teljið mig trúa á Drottin.“ Þessu fylgdi hún fast fram.
16Eitt sinn, er við gengum til bænastaðarins, mætti okkur ambátt nokkur sem hafði spásagnaranda og aflaði húsbændum sínum mikils gróða með því að spá. 17Hún elti Pál og okkur og hrópaði: „Menn þessir eru þjónar Guðs hins hæsta og boða þeir ykkur veg til hjálpræðis!“ 18Þetta gerði hún dögum saman. Páli féll það illa. Loks sneri hann sér við og sagði við andann: „Ég býð þér í nafni Jesú Krists að fara út af henni.“ Og hann fór út á samri stundu.
19Um leið og húsbændur hennar sáu að þar fór ábatavon þeirra gripu þeir Pál og Sílas og drógu þá út á torgið fyrir valdsmennina. 20Þeir færðu þá til höfuðsmannanna og sögðu: „Menn þessir valda mestu óspektum í borg okkar. Þeir eru Gyðingar 21og boða siði sem okkur, rómverskum mönnum, leyfist hvorki að taka upp né fylgja.“ 22Múgurinn réðst og gegn þeim og höfuðsmennirnir létu fletta þá klæðum og skipuðu að húðstrýkja þá. 23Þegar þeir höfðu lostið þá mörg högg vörpuðu þeir þeim í fangelsi og buðu fangaverðinum að gæta þeirra vandlega. 24Þegar hann hafði fengið slíka skipun varpaði hann þeim í innsta fangelsið og felldi stokk á fætur þeim.
25Um miðnætti báðust þeir Páll og Sílas fyrir og lofsungu Guði en bandingjarnir hlustuðu á þá. 26Þá varð skyndilega landskjálfti mikill svo að grunnur fangelsisins riðaði. Jafnskjótt opnuðust allar dyr og fjötrarnir féllu af öllum. 27Fangavörðurinn vaknaði við og er hann sá fangelsisdyrnar opnar dró hann sverð sitt og vildi fyrirfara sér þar eð hann hugði fangana flúna. 28Þá kallaði Páll hárri raustu: „Ger þú sjálfum þér ekkert mein, við erum hér allir!“ 29Fangavörðurinn bað um ljós, stökk inn og féll óttasleginn til fóta Páli og Sílasi. 30Síðan leiddi hann þá út og sagði: „Herrar mínir, hvað á ég að gera til að verða hólpinn?“
31En þeir sögðu: „Trú þú á Drottin Jesú og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.“ 32Og þeir fluttu honum orð Drottins og öllum á heimili hans. 33Samstundis tók fangavörðurinn þá með sér um nóttina, laugaði meiðsli þeirra eftir höggin og var hann þegar skírður og allt hans fólk. 34Síðan fór hann með þá upp í hús sitt, bar þeim mat og hann og allt heimafólk hans fagnaði yfir því að hafa tekið trú á Guð.
35Þegar dagur rann sendu höfuðsmennirnir réttarþjóna sem sögðu: „Lát þú menn þessa lausa.“ 36Fangavörðurinn flutti Páli þessi orð: „Höfuðsmennirnir hafa sent boð um að þið skuluð látnir lausir. Gangið nú út og farið í friði.“
37En Páll sagði við þá: „Þeir hafa opinberlega látið húðstrýkja okkur, rómverska menn, án dóms og laga og varpa í fangelsi og nú ætla þeir leynilega að hleypa okkur út. Ég held nú síður. Þeir skulu koma sjálfir og leiða okkur út.“
38Réttarþjónarnir fluttu höfuðsmönnunum þessi orð. Þeir urðu hræddir er þeir heyrðu að þeir væru rómverskir 39og komu og friðmæltust við þá, leiddu þá út og báðu þá að fara burt úr borginni.
40Þegar þeir voru komnir út úr fangelsinu fóru þeir heim til Lýdíu, fundu trúsystkinin#16.40 Orðrétt: bræðurna. og hughreystu þau. Síðan héldu þeir af stað.

Currently Selected:

Postulasagan 16: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy