YouVersion Logo
Search Icon

Malakí 4

4
1Því sjá, dagurinn kemur, brennandi sem ofn, og allir hrokafullir og allir þeir er guðleysi fremja, munu þá vera sem hálmleggir, og dagurinn sem kemur mun kveikja í þeim - segir Drottinn allsherjar - svo að hvorki verði eftir af þeim rót né kvistur.
2En yfir yður, sem óttist nafn mitt, mun réttlætissólin upp renna með græðslu undir vængjum sínum, og þér munuð út koma og leika yður eins og kálfar, sem út er hleypt úr stíu, 3og þér munuð sundur troða hina óguðlegu, því að þeir munu verða aska undir iljum yðar, - á þeim degi er ég hefst handa - segir Drottinn allsherjar.
Elía kemur aftur
4Munið eftir lögmáli Móse þjóns míns, þess er ég á Hóreb fól setninga og ákvæði fyrir allan Ísrael.
5Sjá, ég sendi yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. 6Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að ég komi ekki og ljósti landið banni.

Currently Selected:

Malakí 4: BIBLIAN81

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy