YouVersion Logo
Search Icon

Filippíbréfið 4

4
Drottinn í nánd
1Þess vegna, mín elskuðu og þráðu systkin,#4.1 Orðrétt: mínir elskuðu og þráðu bræður. gleði mín og kóróna, standið þá stöðug í Drottni. 2Ég áminni Evodíu og Sýntýke að vera samlyndar vegna Drottins. 3Já, ég bið einnig þig, trúlyndi samþjónn, hjálpa þú þeim því að þær börðust með mér við boðun fagnaðarerindisins ásamt Klemens og öðrum samverkamönnum mínum og standa nöfn þeirra í lífsins bók.
4Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. 5Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. 6Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. 7Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú.
8Að endingu, systkin,#4.8 Orðrétt: bræður. allt sem er satt, allt sem er göfugt, rétt og hreint, allt sem er elskuvert og gott afspurnar, hvað sem er dygð og hvað sem er lofsvert, hugfestið það. 9Þið skuluð gera þetta, sem þið hafið bæði lært og numið, heyrt og séð til mín. Og Guð friðarins mun vera með ykkur.
Þakkir
10Ég gleðst mjög og þakka Drottni fyrir að hagur ykkar hefur loks batnað svo aftur að þið gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þið hugsað til mín en gátuð ekki sýnt það í verki. 11Ekki segi ég þetta vegna þess að ég hafi liðið skort því að ég hef lært að láta mér nægja það sem ég hef. 12Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort. 13Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir.
14Eigi að síður gerðuð þið vel í því að vilja hjálpa mér í þrengingu minni. 15Þið vitið og, Filippímenn, að þegar ég í upphafi boðaði ykkur fagnaðarerindið og var farinn burt úr Makedóníu hafði enginn annar söfnuður en þið reikning hjá mér yfir gefið og þegið. 16Meira að segja þegar ég var í Þessaloníku senduð þið mér oftar en einu sinni til nauðsynja minna. 17Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann sem færist ríkulega ykkur til tekna. 18En nú hef ég fengið allt og hef meira en nóg síðan Epafrodítus færði mér sendinguna frá ykkur, þægilegan ilm, þekka fórn, Guði velþóknanlega. 19En Guð minn mun uppfylla allar ykkar þarfir og láta Krist Jesú veita ykkur af dýrlegum auðæfum sínum. 20Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.
Kveðjur
21Heilsið öllum heilögum í Kristi Jesú. 22Bræðurnir, sem hjá mér eru, biðja að heilsa ykkur. Allir heilagir biðja að heilsa ykkur en einkanlega þeir sem eru í þjónustu keisarans.
23Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy