YouVersion Logo
Search Icon

Filippíbréfið 1

1
Kveðja
1Páll og Tímóteus, þjónar Krists Jesú, heilsa öllum heilögum í Filippí, sem eru í Kristi Jesú, ásamt biskupum þeirra og djáknum.
2Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Þakkir og fyrirbæn
3Ég þakka Guði mínum í hvert skipti sem ég hugsa til ykkar 4og geri ávallt í öllum bænum mínum með gleði bæn fyrir ykkur öllum 5vegna samfélags ykkar um fagnaðarerindið frá því þið tókuð við því og allt til þessa. 6Ég fulltreysti einmitt því að hann, sem byrjaði í ykkur góða verkið, muni fullkomna það allt til dags Jesú Krists.
7Víst er það rétt fyrir mig að bera þennan hug til ykkar allra. Ég hef ykkur í hjarta mínu og þið eigið öll hlutdeild með mér í náðinni, bæði í fjötrum mínum og eins er ég er að verja fagnaðarerindið og sannfæra menn um gildi þess. 8Guð er mér þess vitni hvernig ég þrái ykkur öll með ástúð Krists Jesú.
9Og þess bið ég að elska ykkar aukist enn þá meir að þekkingu og dómgreind 10svo að þið getið metið þá hluti rétt sem máli skipta og verðið hrein og ámælislaus til dags Krists, 11auðug að þeim réttlætisávexti sem Jesús Kristur kemur til leiðar Guði til lofs og dýrðar.
12En ég vil að þið, systkin,#1.12 Orðrétt: bræður. vitið að það sem fram við mig hefur komið hefur í raun orðið fagnaðarerindinu til eflingar. 13Því að það er augljóst orðið í allri lífvarðarhöllinni og öllum öðrum að ég er í fjötrum vegna Krists 14og flest hinna trúuðu#1.14 Orðrétt: flestir bræðranna. hafa öðlast meira traust á Drottni við fjötra mína og fengið meiri djörfung til að tala orð Guðs óttalaust.
15Sumir prédika að sönnu Krist af öfund og þrætugirni en sumir gera það líka af góðum hug. 16Þeir gera það af kærleika vegna þess að þeir vita að ég er settur fagnaðarerindinu til varnar. 17Hinir prédika Krist af eigingirni og ekki af hreinum hug heldur í þeim tilgangi að bæta þrengingu ofan á fjötra mína.
18En hvað um það, Kristur er allt að einu boðaður, hvort sem það heldur er af uppgerð eða heilum hug. Og þetta gleður mig. Já, það mun áfram gleðja mig 19því að ég veit að bænir ykkar og hjálpin, sem andi Jesú Krists veitir mér, mun frelsa mig. 20Það er einlæg löngun mín og von að ég verði ekki til smánar í neinu, heldur að ég hafi þann kjark nú eins og ávallt að sýna með lífi mínu og dauða fram á hve mikill Kristur er. 21Því að lífið er mér Kristur og dauðinn ávinningur. 22En eigi ég áfram að lifa á jörðinni, þá verður meiri árangur af starfi mínu. Ekki veit ég hvort ég á heldur að kjósa.
23Ég á úr tvennu vöndu að ráða: Mig langar til að fara héðan og vera með Kristi því að það væri miklu betra. 24En ykkar vegna er nauðsynlegra að ég haldi áfram að lifa hér á jörðu. 25Og í trausti þess veit ég að ég mun lifa og halda áfram að vera hjá ykkur öllum, ykkur til framfara og gleði í trúnni. 26Þá kem ég aftur til ykkar og þið finnið enn betur hvílík upphefð það er að fylgja Kristi.
27En hvað sem öðru líður, þá hegðið ykkur eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist. Hvort sem ég kem og heimsæki ykkur eða ég er fjarverandi vil ég fá að heyra um ykkur að þið standið stöðug í einum anda, berjist með einni sál fyrir trúnni á fagnaðarerindið og 28látið aldrei mótstöðumenn skelfa ykkur í neinu. Hugrekki ykkar er þeim merki frá Guði um glötun þeirra en um frelsun ykkar 29því að Guð veitti ykkur þá náð, ekki einungis að trúa á Krist heldur og að þola þjáningar hans vegna. 30Nú eigið þið í sömu baráttu sem þið sáuð mig heyja og heyrið enn um mig.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy