YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 6:27-49

Lúkasarguðspjall 6:27-49 BIBLIAN07

En ég segi yður er á mig hlýðið: Elskið óvini yðar, gerið þeim gott sem hata yður, blessið þá sem bölva yður og biðjið fyrir þeim er misþyrma yður. Slái þig einhver á kinnina skaltu og bjóða hina og taki einhver yfirhöfn þína skaltu ekki varna honum að taka kyrtilinn líka. Gef þú hverjum sem biður þig og ef einhver tekur frá þér það sem þú átt þá skaltu ekki krefja hann um það aftur. Og eins og þér viljið að aðrir menn geri við yður, svo skuluð þér og þeim gera. Og þótt þér elskið þá sem yður elska, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar elska þá líka sem þá elska. Og þótt þér gerið þeim gott sem yður gera gott, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar gera og hið sama. Og þótt þér lánið þeim sem þér vonið að muni borga, hvaða þökk eigið þér fyrir það? Syndarar lána einnig syndurum til þess að fá allt aftur. Nei, elskið óvini yðar og gerið gott og lánið án þess að vænta nokkurs í staðinn, og laun yðar munu verða mikil og þér verða börn Hins hæsta því að hann er góður við vanþakkláta og vonda. Verið miskunnsöm eins og faðir yðar er miskunnsamur. Dæmið ekki og þér munuð eigi verða dæmd. Sakfellið eigi og þér munuð eigi verða sakfelld. Fyrirgefið öðrum og Guð mun fyrirgefa yður. Gefið og yður mun gefið verða. Góður mælir, troðinn, skekinn, fleytifullur mun lagður í skaut yðar. Því með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður aftur mælt verða.“ Þá sagði Jesús þeim og líkingu: „Hvort fær blindur leitt blindan? Munu ekki báðir falla í gryfju? Ekki er lærisveinn meistaranum fremri en hver sem er fullnuma verður eins og meistari hans. Hví sérð þú flísina í auga bróður þíns en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Hvernig færð þú sagt við bróður þinn: Bróðir, lát mig draga flísina úr auga þér, en sérð ekki bjálkann í þínu auga? Hræsnari, drag fyrst bjálkann úr auga þér og þá sérðu glöggt til að draga flísina úr auga bróður þíns. Því að ekki er til gott tré er beri slæman ávöxt né heldur slæmt tré er beri góðan ávöxt. En hvert tré þekkist af ávexti sínum enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. Góður maður ber gott fram úr góðum sjóði hjarta síns en vondur maður ber vont fram úr vondum sjóði. Af gnægð hjartans mælir munnur hans. En hví kallið þér mig Drottin, Drottin, og gerið ekki það sem ég segi? Ég skal sýna yður hverjum sá er líkur sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim. Hann er líkur manni er byggði hús, gróf djúpt fyrir og grundvallaði það á bjargi. Nú kom flóð og flaumurinn skall á því húsi en fékk hvergi hrært það vegna þess að það var vel byggt. Hinn, er heyrir það sem ég segi og breytir ekki eftir því, er líkur manni sem byggði hús á jörðinni án undirstöðu. Flaumurinn skall á því og það hús féll þegar og fall þess varð mikið.“