YouVersion Logo
Search Icon

Síðari konungabók 19

19
Hiskía leitar til Jesaja spámanns
1Þegar Hiskía konungur heyrði þetta reif hann klæði sín, klæddist hærusekk og gekk í musteri Drottins. 2Síðan sendi hann Eljakím hirðstjóra, Sebna ríkisritara og öldunga prestanna klædda hærusekkjum til Jesaja Amotssonar spámanns 3og skyldu þeir segja við hann: „Svo segir Hiskía: Í dag er dagur neyðar, hirtingar og háðungar. Barnið er komið í burðarliðinn en krafturinn enginn til að fæða. 4Ef til vill hefur Drottinn, Guð þinn, heyrt öll orð konungsfulltrúans sem Assýríukonungur, húsbóndi hans, lét hann segja til að smána hinn lifandi Guð. Ef til vill mun Drottinn, Guð þinn, senda refsingu fyrir það sem hann heyrði. En bið þú fyrir þeim sem af komast.“
5Þjónar Hiskía konungs komu nú til Jesaja 6og hann sagði við þá: „Segið húsbónda ykkar: Svo segir Drottinn: Þú skalt ekki óttast smánaryrðin sem þjónar Assýríukonungs svívirtu mig með. 7Ég mun senda í hann anda og hann mun heyra orðróm nokkurn og snúa aftur til lands síns. Síðan læt ég hann falla fyrir sverði í sínu eigin landi.“
8Marskálkurinn sneri aftur er hann frétti að Assýríukonungur væri farinn frá Lakís og fann hann þar sem hann herjaði á Líbna. 9Er Assýríukonungur frétti að Tírhaka, konungur Kúss, væri lagður af stað í hernað gegn honum gerði hann menn á fund Hiskía með þessi boð: 10„Svo skuluð þið segja við Hiskía Júdakonung: Láttu ekki þennan guð þinn, sem þú treystir á, blekkja þig svo að þú haldir að Jerúsalem verði ekki látin í hendur Assýríukonungi. 11Þú hlýtur að hafa heyrt hvernig Assýríukonungar hafa farið með öll önnur lönd. Þeir hafa gereytt þau. Heldur þú að þú bjargist? 12Björguðu guðirnir þjóðunum sem forfeður mínir gereyddu? Björguðu þeir Gósan og Haran, Resef og Edensmönnum sem bjuggu í Telassar? 13Hvar er konungur Hamats, hvar er konungur Arpads eða konungarnir í Laír, Sefarvaím, Hena og Íva?“
Bæn Hiskía
14Hiskía tók við bréfinu af sendiboðunum, las það, gekk í musteri Drottins og breiddi úr því frammi fyrir augliti Drottins. 15Síðan flutti Hiskía bæn fyrir augliti Drottins og sagði:
„Drottinn, Guð Ísraels, þú sem situr í hásæti yfir kerúbunum, þú einn ert Guð allra konungsríkja veraldar. Það ert þú sem hefur gert himin og jörð. 16Leggðu við eyru og heyr. Ljúktu upp augum, Drottinn, og líttu á. Hlýddu á skilaboð Sanheríbs sem hann sendi til þess að smána hinn lifandi Guð. 17Satt er það, Drottinn, að konungar Assýríu hafa eytt þjóðum og löndum þeirra 18og varpað guðum þeirra á eld. En þeir voru engir guðir heldur verk manna úr tré og steini. Þess vegna gátu þeir eytt þeim. 19Drottinn, Guð okkar, bjargaðu okkur nú úr greipum hans svo að öll konungsríki veraldar komist að raun um að þú, Drottinn, þú einn ert Guð.“
Háðkvæði um Assýríukonung
20Jesaja Amotsson sendi þessi boð til Hiskía: „Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Þú hefur beðið til mín um hjálp gegn Sanheríb Assýríukonungi og ég hef bænheyrt þig. 21Þetta er orðið sem Drottinn hefur talað gegn honum:
Hún fyrirlítur þig, hún hæðist að þér,
mærin, dóttirin Síon.
Hún hristir höfuðið yfir þér,
dóttirin Jerúsalem.
22Hvern hefur þú smánað og hvern spottað?
Gegn hverjum hefur þú brýnt raustina,
gegn hverjum hvesst augun?
Gegn Hinum heilaga í Ísrael!
23Þú hæddir Drottin af munni sendiboða þinna
og sagðir: „Ég hef farið upp á hæstu fjöllin,
á efsta tind Líbanons
með fjölmarga stríðsvagna.
Ég hef höggvið hæstu sedrustrén
og voldugustu kýprustrén.
Ég hef komið inn í innstu fylgsnin
í þéttasta þykkninu.
24Ég hef grafið brunna
og drukkið útlent vatn.
Ég hef þurrkað upp allar ár Egyptalands
undir iljum fóta minna.“
25Hefur þú ekki heyrt?
Fyrir löngu kom ég þessu til leiðar,
frá öndverðu ráðgerði ég þetta.
Nú hef ég látið það verða:
Þú gerðir víggirtar borgir
að rústum og grjóthrúgum
26svo að íbúum þeirra féllust hendur
og þeir voru niðurlægðir og auðmýktir.
Þeir voru eins og reyr á engi,
eins og nýsprottið grængresið.
Þeir voru líkir grasi á þaki
sem sviðnaði í glóðheitum austanvindinum.
27Hvort sem þú situr kyrr,
gengur út eða inn,
þá veit ég það.
28Þar sem þú hefur hamast gegn mér
og öskur þitt hefur borist mér til eyrna
set ég hring í nasir þér og beisli í munn þér:
Ég mun teyma þig aftur
sama veg og þú komst.
Fyrirheit um björgun Jerúsalem
29Þetta skal vera þér#19.29 Átt er við Hiskía konung. tákn:
Á þessu ári skuluð þér
nærast á sjálfsánu korni,
næsta ár á villtu korni
en þriðja árið skuluð þér sá og uppskera,
planta víngarða
og neyta ávaxta þeirra.
30Þeir sem skildir verða eftir af Júdaættkvísl
og komast af
munu aftur skjóta rótum í jörðu
og bera ávöxt hið efra.
31Frá Jerúsalem koma þeir sem eftir verða
og frá Síonarfjalli þeir sem frelsast.
Brennandi ákafi Drottins mun koma þessu til leiðar.
32Þess vegna segir Drottinn um Assýríukonung:
Hann kemur ekki inn í þessa borg,
skýtur ekki einni ör þangað.
Hann ber hvorki skjöld gegn henni
né hleður að henni virkisvegg.
33Hann mun snúa aftur sama veg og hann kom,
inn í þessa borg kemur hann ekki, segir Drottinn.
34Ég vil vernda þessa borg og frelsa hana,
vegna sjálfs mín og vegna Davíðs, þjóns míns.
Jerúsalem bjargað
35Þessa sömu nótt fór engill Drottins út og deyddi hundrað áttatíu og fimm þúsund menn í herbúðum Assýringa. Um fótaferð morguninn eftir voru þeir allir liðin lík. 36Sanheríb Assýríukonungur lagði þá af stað, sneri aftur til Níníve og hélt þar kyrru fyrir. 37En svo bar við einhverju sinni þegar hann baðst fyrir í húsi Nísroks, guðs síns, að Adrammelek og Sareser, synir hans, hjuggu hann til bana með sverði. Þeir komust undan á flótta til Araratlands. Asarhaddon, sonur Sanheríbs, varð konungur eftir hann.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy