YouVersion Logo
Search Icon

Fyrsta Jóhannesarbréf 5

5
Sigur trúarinnar
1Hver sem trúir að Jesús sé Kristur er barn Guðs og hver sem elskar föðurinn elskar einnig barn hans. 2Við vitum að við elskum börn Guðs af því að við elskum Guð og breytum eftir boðorðum hans. 3Því að elskan til Guðs birtist í að við höldum boðorð hans. Og boðorð hans eru ekki þung 4því að sérhvert barn Guðs sigrar heiminn og trú okkar er sigurinn, hún hefur sigrað heiminn.
Vitnisburður Guðs
5Hver er sá sem sigrar heiminn nema sá sem trúir að Jesús sé sonur Guðs?
6Hann er sá sem kom með vatni og blóði, Jesús Kristur. Ekki með vatninu eingöngu heldur með vatninu og með blóðinu. Og andinn er sá sem vitnar því að andinn er sannleikurinn. 7Þrír eru þeir sem vitna [í himninum: Faðirinn, orðið og heilagur andi, og þessir þrír eru eitt. Og þeir eru þrír sem vitna á jörðunni:]#5.7 Vantar í sum handrit. 8Andinn og vatnið og blóðið og þeim þremur ber saman. 9Við tökum manna vitnisburð gildan en vitnisburður Guðs er meiri. Þetta er vitnisburður Guðs sem hann hefur vitnað um son sinn. 10Sá sem trúir á son Guðs hefur vitnisburðinn innra með sér. Sá sem ekki trúir Guði hefur gert hann að lygara af því að hann hefur ekki trúað á þann vitnisburð sem Guð hefur vitnað um son sinn. 11Og þetta er vitnisburðurinn: Guð hefur gefið okkur eilíft líf og þetta líf er í syni hans. 12Sá sem hefur soninn á lífið, sá sem ekki á son Guðs á ekki lífið.
Eilíft líf
13Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. 14Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. 15Og ef við vitum að hann bænheyrir okkur um hvað sem við biðjum, þá vitum við að við höfum þegar öðlast það sem við báðum hann um.
16Ef einhver sér bróður sinn eða systur#5.16 Orðrétt: bróður sinn. drýgja synd, sem leiðir ekki til dauða, þá skal hann biðja Guð og hann mun gefa líf þeim sem syndgar ekki til dauða. Til er synd sem leiðir til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja. 17Allt ranglæti er synd en til er synd sem ekki leiðir til dauða.
18Við vitum að börn Guðs syndga ekki, hann sem er sonur Guðs varðveitir þau og hinn vondi snertir þau ekki.
19Við vitum að við erum Guðs eign og allur heimurinn er á valdi hins vonda. 20Við vitum að sonur Guðs er kominn og hefur gefið okkur skilning til þess að við þekkjum sannan Guð. Við lifum í hinum sanna Guði, í syni hans Jesú Kristi. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
21Börnin mín, gætið ykkar á falsguðunum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy