1
Matteusarguðspjall 28:19-20
Biblían (1981)
BIBLIAN81
Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.”
Compare
Explore Matteusarguðspjall 28:19-20
2
Matteusarguðspjall 28:18
Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: “Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
Explore Matteusarguðspjall 28:18
3
Matteusarguðspjall 28:5-6
En engillinn mælti við konurnar: “Þér skuluð eigi óttast. Ég veit, að þér leitið að Jesú hinum krossfesta. Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn, þar sem hann lá.
Explore Matteusarguðspjall 28:5-6
4
Matteusarguðspjall 28:10
Þá segir Jesús við þær: “Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum að halda til Galíleu. Þar munu þeir sjá mig.”
Explore Matteusarguðspjall 28:10
5
Matteusarguðspjall 28:12-15
En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: “Segið þetta: ‘Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.’ Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir.” Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.
Explore Matteusarguðspjall 28:12-15