Matteusarguðspjall 28:12-15
Matteusarguðspjall 28:12-15 BIBLIAN81
En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: “Segið þetta: ‘Lærisveinar hans komu á næturþeli, meðan vér sváfum, og stálu honum.’ Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna, skulum vér sefa hann, svo að þér getið verið áhyggjulausir.” Þeir tóku við fénu og gjörðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.





