1
Matteusarguðspjall 28:19-20
Biblían (2007)
BIBLIAN07
Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.“
Compare
Explore Matteusarguðspjall 28:19-20
2
Matteusarguðspjall 28:18
Og Jesús kom til þeirra, talaði við þá og sagði: „Allt vald er mér gefið á himni og jörðu.
Explore Matteusarguðspjall 28:18
3
Matteusarguðspjall 28:5-6
En engillinn mælti við konurnar: „Þið skuluð eigi óttast. Ég veit að þið leitið að Jesú hinum krossfesta. Hann er ekki hér. Hann er upp risinn, eins og hann sagði. Komið og sjáið staðinn þar sem hann lá.
Explore Matteusarguðspjall 28:5-6
4
Matteusarguðspjall 28:10
Þá segir Jesús við þær: „Óttist ekki, farið og segið bræðrum mínum og systrum að halda til Galíleu. Þar munu þau sjá mig.“
Explore Matteusarguðspjall 28:10
5
Matteusarguðspjall 28:12-15
En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: „Segið þetta: Lærisveinar hans komu á næturþeli meðan við sváfum og stálu honum. Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna skulum við sefa hann svo að þið getið verið áhyggjulausir.“ Hermennirnir tóku við fénu og gerðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.
Explore Matteusarguðspjall 28:12-15