Matteusarguðspjall 28:12-15
Matteusarguðspjall 28:12-15 BIBLIAN07
En þeir kvöddu saman öldungana og tóku það ráð með þeim að bera mikið fé á hermennina og mæltu við þá: „Segið þetta: Lærisveinar hans komu á næturþeli meðan við sváfum og stálu honum. Og ef þetta berst landshöfðingjanum til eyrna skulum við sefa hann svo að þið getið verið áhyggjulausir.“ Hermennirnir tóku við fénu og gerðu sem þeim var sagt. Þessi sögusögn hefur verið borin út meðal Gyðinga allt til þessa dags.





