YouVersion Logo
Search Icon

Jóhannesarguðspjall 1

1
Orðið varð hold
1Í upphafi var Orðið#1.1 Orðið og ljósið í 9. versi vísa til Jesú, sbr. 14. vers. og Orðið var hjá Guði og Orðið var Guð. 2Hann var í upphafi hjá Guði. 3Allt varð til fyrir hann,#1.3 Fyrir merkir „fyrir atbeina einhvers, um hendur einhvers“. án hans varð ekki neitt sem til er. 4Í honum var líf og lífið var ljós mannanna. 5Ljósið skín í myrkrinu og myrkrið tók ekki á móti því.
6Maður kom fram, sendur af Guði. Hann hét Jóhannes. 7Hann kom til vitnisburðar, að vitna um ljósið og vekja alla til trúar á það. 8Ekki var hann ljósið, hann kom til að vitna um ljósið.
9Hið sanna ljós, sem upplýsir hvern mann, kom nú í heiminn. 10Hann var í heiminum og heimurinn var orðinn til fyrir hann en heimurinn þekkti hann ekki. 11Hann kom til eignar sinnar en hans eigið fólk tók ekki við honum. 12En öllum þeim sem tóku við honum gaf hann rétt til að verða Guðs börn, þeim sem trúa á nafn hans. 13Þau urðu ekki til á náttúrulegan hátt né af vilja manns heldur eru þau af Guði fædd.
14Og Orðið varð hold,#1.14 Hold þýðir maður. hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem sonurinn eini á frá föðurnum. 15Jóhannes vitnar um hann og hrópar: „Þetta er sá sem ég átti við þegar ég sagði: Sá sem kemur eftir mig var á undan mér enda fyrri en ég.“
16Af gnægð hans höfum vér öll þegið, náð á náð ofan. 17Lögmálið var gefið með Móse en náðin og sannleikurinn eru komin með Jesú Kristi. 18Enginn hefur nokkurn tíma séð Guð. Sonurinn eini, Guð, sem er í faðmi föðurins, hann hefur birt hann.
Jóhannes skírari vitnar
19Þessi er vitnisburður Jóhannesar þegar ráðamenn#1.19 Orðrétt: Gyðingar. í Jerúsalem sendu til hans presta og Levíta til að spyrja hann: „Hver ert þú?“
20Hann svaraði ótvírætt og játaði: „Ekki er ég Kristur.“
21Þeir spurðu hann: „Hvað þá? Ertu Elía?“
Hann svarar: „Ekki er ég hann.“
„Ertu spámaðurinn?“
Hann kvað nei við.
22Þá sögðu þeir við hann: „Hver ert þú? Við verðum að svara þeim er sendu okkur. Hvað segir þú um sjálfan þig?“
23Hann sagði: „Ég er sá sem Jesaja spámaður talar um. Ég er rödd hrópanda í eyðimörk er segir: Gerið beinan veg Drottins.“
24Sendir voru menn af flokki farísea. 25Þeir spurðu hann: „Hvers vegna skírir þú, fyrst þú ert hvorki Kristur, Elía né spámaðurinn?“
26Jóhannes svaraði: „Ég skíri með vatni. Mitt á meðal ykkar stendur sá sem þið þekkið ekki, 27hann sem kemur eftir mig og skóþveng hans er ég ekki verður að leysa.“
28Þetta bar við í Betaníu, handan Jórdanar, þar sem Jóhannes var að skíra.
Lamb Guðs
29Daginn eftir sér Jóhannes Jesú koma til sín og segir: „Sjá, Guðs lamb sem ber synd heimsins. 30Þar er sá er ég sagði um: Eftir mig kemur maður sem er mér fremri því hann var til á undan mér. 31Sjálfur þekkti ég hann ekki. En til þess kom ég og skíri með vatni að hann opinberist Ísrael.“
32Og Jóhannes vitnaði: „Ég sá andann koma af himni ofan eins og dúfu og hann nam staðar yfir honum. 33Sjálfur þekkti ég hann ekki en sá er sendi mig að skíra með vatni sagði mér: Sá sem þú sérð andann koma yfir og nema staðar á, hann er sá sem skírir með heilögum anda. 34Þetta sá ég og ég vitna að hann er sonur Guðs.“
Fyrstu lærisveinar
35Daginn eftir var Jóhannes þar aftur staddur og tveir lærisveinar hans. 36Hann sér Jesú á gangi og segir: „Sjá, Guðs lamb.“ 37Lærisveinar hans tveir heyrðu orð hans og fóru á eftir Jesú.
38Jesús sneri sér við, sá þá koma á eftir sér og sagði við þá: „Hvers leitið þið?“
Þeir svara: „Rabbí, hvar dvelst þú?“ en Rabbí þýðir meistari.
39Hann segir: „Komið og sjáið.“ Þeir komu og sáu hvar hann dvaldist og voru hjá honum þann dag. Þetta var síðdegis.#1.39 Orðrétt: um tíundu stundu, þ.e. kl. fjögur eftir hádegi.
40Annar þessara tveggja, sem heyrðu orð Jóhannesar og fóru á eftir Jesú, var Andrés, bróðir Símonar Péturs. 41Hann finnur fyrst bróður sinn, Símon, og segir við hann: „Við höfum fundið Messías!“ en Messías þýðir Kristur, Hinn smurði. 42Hann fór með hann til Jesú. Jesús horfði á hann og sagði: „Þú ert Símon Jóhannesson, þú skalt heita Kefas,“ en Kefas, Pétur, þýðir klettur.
43Næsta dag hugðist Jesús fara til Galíleu. Hann hitti þá Filippus og sagði við hann: „Fylg þú mér!“ 44Filippus var frá Betsaídu, sömu borg og Andrés og Pétur. 45Filippus fann Natanael og sagði við hann: „Við höfum fundið þann sem Móse skrifar um í lögmálinu og einnig spámennirnir, Jesú frá Nasaret, son Jósefs.“
46Natanael sagði: „Getur nokkuð gott komið frá Nasaret?“
Filippus svaraði: „Kom þú og sjá.“
47Jesús sá Natanael koma til sín og sagði við hann: „Hér er sannur Ísraelíti sem engin svik eru í.“
48Natanael spyr: „Hvaðan þekkir þú mig?“
Jesús svarar: „Ég sá þig undir fíkjutrénu áður en Filippus kallaði á þig.“
49Þá segir Natanael: „Rabbí, þú ert sonur Guðs, þú ert konungur Ísraels.“
50Jesús spyr hann: „Trúir þú af því að ég sagði við þig: Ég sá þig undir fíkjutrénu? Þú munt sjá það sem þessu er meira.“ 51Og hann segir við hann: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð sjá himininn opinn og engla Guðs stíga upp og stíga niður yfir Mannssoninn.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy