1
Matteusarguðspjall 7:7
Biblían (1981)
BIBLIAN81
Biðjið, og yður mun gefast, leitið, og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða.
Compare
Explore Matteusarguðspjall 7:7
2
Matteusarguðspjall 7:8
Því að hver sá öðlast, sem biður, sá finnur, sem leitar, og fyrir þeim, sem á knýr, mun upp lokið verða.
Explore Matteusarguðspjall 7:8
3
Matteusarguðspjall 7:24
Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni, er byggði hús sitt á bjargi.
Explore Matteusarguðspjall 7:24
4
Matteusarguðspjall 7:12
Allt sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir.
Explore Matteusarguðspjall 7:12
5
Matteusarguðspjall 7:14
Hve þröngt er það hlið og mjór sá vegur, er liggur til lífsins, og fáir þeir, sem finna hann.
Explore Matteusarguðspjall 7:14
6
Matteusarguðspjall 7:13
Gangið inn um þrönga hliðið. Því að vítt er hliðið og vegurinn breiður, sem liggur til glötunar, og margir þeir, sem þar fara inn.
Explore Matteusarguðspjall 7:13
7
Matteusarguðspjall 7:11
Fyrst þér, sem eruð vondir, hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hve miklu fremur mun þá faðir yðar á himnum gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann?
Explore Matteusarguðspjall 7:11
8
Matteusarguðspjall 7:1-2
Dæmið ekki, svo að þér verðið ekki dæmdir. Því að með þeim dómi, sem þér dæmið, munuð þér dæmdir, og með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða.
Explore Matteusarguðspjall 7:1-2
9
Matteusarguðspjall 7:26
En hver sem heyrir þessi orð mín og breytir ekki eftir þeim, sá er líkur heimskum manni, er byggði hús sitt á sandi.
Explore Matteusarguðspjall 7:26
10
Matteusarguðspjall 7:3-4
Hví sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Eða hvernig fær þú sagt við bróður þinn: ‘Lát mig draga flísina úr auga þér?’ Og þó er bjálki í auga sjálfs þín.
Explore Matteusarguðspjall 7:3-4
11
Matteusarguðspjall 7:15-16
Varist falsspámenn. Þeir koma til yðar í sauðaklæðum, en innra eru þeir gráðugir vargar. Af ávöxtum þeirra skuluð þér þekkja þá. Hvort lesa menn vínber af þyrnum eða fíkjur af þistlum?
Explore Matteusarguðspjall 7:15-16
12
Matteusarguðspjall 7:17
Þannig ber sérhvert gott tré góða ávöxtu, en slæmt tré vonda.
Explore Matteusarguðspjall 7:17
13
Matteusarguðspjall 7:18
Gott tré getur ekki borið vonda ávöxtu, ekki heldur slæmt tré góða ávöxtu.
Explore Matteusarguðspjall 7:18
14
Matteusarguðspjall 7:19
Hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og í eld kastað.
Explore Matteusarguðspjall 7:19