En einn hefur máttinn til þess að styrkja yður með fagnaðarerindi mínu, boðskap Jesú Krists. Þar opinberast leyndardómur sem var hulinn þögn um eilífar tíðir en er nú opinber í spámannlegum ritningum og að boði hins eilífa Guðs kunngjörður öllum þjóðum að þær taki hann til sín og trúi. Honum, einum alvitrum Guði, sé sakir Jesú Krists dýrðin um aldir alda. Amen.