1
Rómverjabréfið 12:2
Biblían (2007)
BIBLIAN07
Fylgið ekki háttsemi þessa heims. Látið heldur umbreytast með hinu nýja hugarfari og lærið svo að skilja hver sé vilji Guðs, hið góða, fagra og fullkomna.
Compare
Explore Rómverjabréfið 12:2
2
Rómverjabréfið 12:1
Því brýni ég ykkur, systkin, að þið vegna miskunnar Guðs bjóðið fram sjálf ykkur að lifandi, heilagri, Guði þóknanlegri fórn. Það er sönn guðsdýrkun af ykkar hendi.
Explore Rómverjabréfið 12:1
3
Rómverjabréfið 12:12
Verið glöð í voninni, þolinmóð í þjáningunni, staðföst í bæninni.
Explore Rómverjabréfið 12:12
4
Rómverjabréfið 12:21
Lát ekki hið illa sigra þig en sigra þú illt með góðu.
Explore Rómverjabréfið 12:21
5
Rómverjabréfið 12:10
Verið ástúðleg hvert við annað í bróðurlegum kærleika og keppist um að sýna hvert öðru virðingu.
Explore Rómverjabréfið 12:10
6
Rómverjabréfið 12:9
Elskan sé flærðarlaus. Hafið andstyggð á hinu vonda en haldið fast við hið góða.
Explore Rómverjabréfið 12:9
7
Rómverjabréfið 12:18
Hafið frið við alla menn að því leyti sem það er unnt og á ykkar valdi.
Explore Rómverjabréfið 12:18
8
Rómverjabréfið 12:19
Leitið ekki hefnda sjálf, mín elskuðu, látið reiði Guðs um að refsa eins og ritað er: „Mín er hefndin, ég mun endurgjalda,“ segir Drottinn.
Explore Rómverjabréfið 12:19
9
Rómverjabréfið 12:11
Verið ekki hálfvolg í áhuganum, verið brennandi í andanum. Þjónið Drottni.
Explore Rómverjabréfið 12:11
10
Rómverjabréfið 12:3
Fyrir þá náð sem mér er gefin segi ég ykkur öllum: Enginn hugsi hærra um sjálfan sig en hugsa ber heldur í réttu hófi, og hver og einn haldi sér við þann mæli trúar sem Guð hefur úthlutað honum.
Explore Rómverjabréfið 12:3
11
Rómverjabréfið 12:17
Gjaldið engum illt fyrir illt. Stundið það sem fagurt er fyrir sjónum allra manna.
Explore Rómverjabréfið 12:17
12
Rómverjabréfið 12:16
Berið sama hug til allra, verið ekki stórlát, umgangist fúslega lítilmagna. Oftreystið ekki eigin hyggindum.
Explore Rómverjabréfið 12:16
13
Rómverjabréfið 12:20
En „ef óvin þinn hungrar þá gef honum að eta, ef hann þyrstir þá gef honum að drekka. Með því að gera þetta safnar þú glóðum elds á höfuð honum.“
Explore Rómverjabréfið 12:20
14
Rómverjabréfið 12:14-15
Blessið þá er ofsækja ykkur. Blessið en bölvið ekki. Fagnið með fagnendum, grátið með grátendum.
Explore Rómverjabréfið 12:14-15
15
Rómverjabréfið 12:13
Takið þátt í þörfum heilagra. Leggið stund á gestrisni.
Explore Rómverjabréfið 12:13
16
Rómverjabréfið 12:4-5
Við höfum á einum líkama marga limi en limirnir hafa ekki allir sama starfa. Eins erum við, þótt mörg séum, einn líkami í Kristi en hvert um sig annars limir.
Explore Rómverjabréfið 12:4-5