1
Rómverjabréfið 1:16
Biblían (2007)
BIBLIAN07
Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir, Gyðinginn fyrst og aðra síðan.
Compare
Explore Rómverjabréfið 1:16
2
Rómverjabréfið 1:17
Réttlæti Guðs opinberast í því fyrir trú til trúar eins og ritað er: Hinn réttláti mun lifa fyrir trú.
Explore Rómverjabréfið 1:17
3
Rómverjabréfið 1:20
Ósýnilega veru hans, eilífan mátt og guðdómstign má skynja og sjá af verkum hans allt frá sköpun heimsins. Því eru mennirnir án afsökunar.
Explore Rómverjabréfið 1:20
4
Rómverjabréfið 1:21
Þeir þekktu Guð en hafa samt ekki tignað hann sem Guð né þakkað honum heldur fylltu þeir hugann af hégiljum og skynlaust hjarta þeirra hjúpaðist myrkri.
Explore Rómverjabréfið 1:21
5
Rómverjabréfið 1:25
Þeir völdu lygina í staðinn fyrir sannleika Guðs, hafa göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu.
Explore Rómverjabréfið 1:25
6
Rómverjabréfið 1:18
En reiði Guðs opinberast af himni yfir öllu guðleysi og illsku manna sem kefja sannleikann með ranglæti.
Explore Rómverjabréfið 1:18
7
Rómverjabréfið 1:26-28
Því hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg og eins hafa karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn hafa framið skömm með karlmönnum og tóku svo út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar. Fyrst menn hirtu ekkert um að þekkja Guð sleppti hann þeim á vald ósæmilegs hugarfars.
Explore Rómverjabréfið 1:26-28
8
Rómverjabréfið 1:22-23
Þeir þóttust vera vitrir en urðu heimskingjar. Í stað þess að tilbiðja dýrlegan, eilífan Guð hafa þeir tilbeðið myndir af dauðlegum mönnum, fuglum, ferfætlingum og skriðkvikindum.
Explore Rómverjabréfið 1:22-23
Home
Bible
Plans
Videos