1
Opinberunarbókin 13:18
Biblían (2007)
Hér reynir á speki. Sá sem skilning hefur reikni tölu dýrsins því að tala manns er það og tala hans er sex hundruð sextíu og sex.
Compare
Explore Opinberunarbókin 13:18
2
Opinberunarbókin 13:8
Og allir þeir sem á jörðunni búa og eiga nöfn sín ekki frá grundvöllun veraldar rituð í lífsbók lambsins, sem slátrað var, munu tilbiðja það.
Explore Opinberunarbókin 13:8
3
Opinberunarbókin 13:16-17
Og dýrið lætur alla, smáa og stóra, auðuga og fátæka og frjálsa og ófrjálsa, setja merki á hægri hönd sér eða á enni sín og kemur því til leiðar að enginn geti keypt eða selt nema hann hafi merkið, nafn dýrsins, eða tölu nafns þess.
Explore Opinberunarbókin 13:16-17
4
Opinberunarbókin 13:10
Sá sem ánauð er ætluð fer í ánauð, sá sem ætlað er að falla fyrir sverði verður með sverði felldur. Hér reynir á þolgæði og trú hinna heilögu.
Explore Opinberunarbókin 13:10
5
Opinberunarbókin 13:1
Þá sá ég dýr stíga upp af hafinu. Það hafði tíu horn og sjö höfuð og á hverju horni var ennisdjásn og á höfðum þess voru skráð nöfn með guðlasti.
Explore Opinberunarbókin 13:1
6
Opinberunarbókin 13:7
Og því var leyft að heyja stríð við hina heilögu og sigra þá og því var gefið vald yfir sérhverri kynkvísl og lýð, tungu og þjóð.
Explore Opinberunarbókin 13:7
7
Opinberunarbókin 13:14-15
Og það leiðir alla þá sem á jörðunni búa afvega með táknum sem fyrra dýrið leyfir því að gera. Það segir þeim sem á jörðunni búa að gera líkneski af dýrinu sem sárið fékk undan sverðinu en lifnaði við. Því var leyft að gefa líkneski fyrra dýrsins anda til þess að það gæti einnig talað og komið því til leiðar að allir yrðu þeir deyddir sem ekki vildu tilbiðja það.
Explore Opinberunarbókin 13:14-15
8
Opinberunarbókin 13:2
Dýrið, sem ég sá, var líkt pardusdýri, fætur þess voru sem bjarnarfætur og gin þess eins og ljónsgin. Drekinn gaf því mátt sinn og hásæti sitt og vald mikið.
Explore Opinberunarbókin 13:2
9
Opinberunarbókin 13:5
Og því var gefinn munnur, er mælti gífuryrði og guðlast, og leyft að fara því fram í fjörutíu og tvo mánuði.
Explore Opinberunarbókin 13:5
10
Opinberunarbókin 13:3
Eitt af höfðum þess virtist sært til ólífis en banasár þess varð heilt. Öll jörðin fylgdi dýrinu með undrun
Explore Opinberunarbókin 13:3
11
Opinberunarbókin 13:11-12
Og ég sá annað dýr stíga upp af jörðunni og það hafði tvö horn lík lambshornum en það talaði eins og dreki. Fyrra dýrið hefur gefið því allt vald sitt og það lætur jörðina og þá sem á henni búa tilbiðja fyrra dýrið sem varð heilt af banasári sínu.
Explore Opinberunarbókin 13:11-12
YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy
Home
Bible
Plans
Videos