Allt sem kirkjan þín þarf til að koma boðskap sínum á framfæri og deila með öðrum. Ókeypis, pappírslaust og hefur þegar verið sett upp á milljónum tækja.
Þátttakendur geta fylgst með, tekið virkan þátt í lestri Biblíunnar, skrifað minnispunkta og vistað sitt eigið sérsniðið eintak til frekari skoðunar seinna meir.
Yfirlit yfir skilaboð, tilkynningar, tenglar á netið sem gefa… allt sem þú þarft til að koma kirkjunni þinni á framfæri, deila því öllu - 100% ókeypis.
Vinsælar lestraráætlanir og hugleiðingar sem hjálpar samfélaginu þínu að tengjast ritningunni alla vikuna.

Búðu til viðburði með lítilli fyrirhöfn frá hvaða nettengdu Mac eða PC tölvu sem er. Dragðu og slepptu hverju atriði fyrir sig á sinn stað, endurraðaðu, breyttu og lagfærðu þegar þú ferð.
Sveigjanlegar einingar spara þér tíma og fyrirhöfn. Sameinaðu þætti til að búa til nýja viðburði frá grunni eða endurnýttu núverandi viðburði og breyttu þeim eftir þörfum. Þú getur jafnvel afritað viðburði sem til eru og breytt þeim svo þeir henti öðrum viðburðum. Forskoðun gerir þér kleift að sjá innihald viðburðarins nákvæmlega eins og þátttakendur þínir munu gera.
Útlínur, lykilatriði, umræðuspurningar… Deildu texta sem hjálpar þátttakendum að fylgja ræðunni eftir í rauntíma.
Birtu kafla beint þar sem skilaboðin þín vísa til þeirra, tengd við einhverja af 2400+ útgáfum Biblíuappsins, á 1600+ tungumálum — engin afritun eða límun nauðsynleg.
Tengingar við biblíulestraráætlanir og hugleiðingar sem tengjast fræðslunni þinni og hjálpa áheyrendum að skoða Guðs orð enn frekar alla daga vikunnar.
Settu áhorfendur þína aðeins einum smelli frá gjöfum á netinu, sjálfboðaliðaskráningu eða heimasíðum kirkjunnar. Settu tengil á hvaða ytri síðu sem er beint inn í viðburðinn þinn.
Lífgaðu við viðburðinn þinn með listaverki úr röðum, myndum, versalausum myndum og fleira. Þátttakendur geta auðveldlega deilt myndum af viðburðinum á samfélagsmiðlum sínum og látið skilaboðin þín berast víða.
Dreifðu auðveldlega öllum tímabærum og mikilvægum upplýsingum þínum: fréttum kirkjunnar, dagatalviðburðum, áætlunum, námskeiðum, sjálfboðaliða- og trúboðstækifærum og fleira.
Láttu fólk vita hvar og hvenær viðburðurinn þinn á sér stað — jafnvel fyrir viðburði sem eiga sér stað á mörgum tímum og stöðum.
Sparaðu tíma og fyrirhöfn. Búðu fljótt til nýja viðburði með því að afrita núverandi og breyta þeim með uppfærðum upplýsingum.
Sparaðu peninga í prentun og notaðu minna pappír… jafnvel á meðan þú ert að ná til fólks á vettvangi með meira en 200 milljón uppsetningar.


„Við vorum spennt að byrja að nota YouVersion í kirkjulegri þjónustu, sérstaklega Viðburði, sem við notum til að deila kennsluleiðbeiningum og athugasemdum í hverri viku. Söfnuðurinn er þakklátur fyrir að hafa upplýsingar innan seilingar, geta deilt þeim og vistað. Við getum notað þúsundir dollara í önnur verkefni með því að hætta prentun á messuskrám.“
Prestur Bill White
Christ Journey Church

„Viðburðir í YouVersion er mikilvægt tæki fyrir söfnuðinn okkar. Möguleiki safnaðarins á að hlusta og fylgjast með prédikuninni með hjálp athugasemda og ritningartexta í Viðburðum skapar meiri þátttöku og hefur mikil áhrif.“
Prestur Herbert Cooper
People's Church

„Við notum Viðburði fyrir alla fundi hjá söfnuðinum. Það gerir þátttakendum kleift að hafa minnismiða og ritningartexta frá prédikara dagsins fyrir framan þá. Viðburðir hafa sparað okkur prentun á þúsundum blaðsíðna! Að setja upp Viðburð er ótrúlega auðvelt og það er alltaf tilbúið til notkunar þegar við þörfnumst þess.“
Cindy Beall
Forstöðumaður Equip hjá Leading and Loving It
Bylting í samskiptum við Biblíuna á sér stað á okkar ævi. Uppsett á meira en 750 milljón einstök tæki hingað til (og enn að telja), Biblíuappið hjálpar fólki í öllum löndum jarðar að tengjast betur orði Guðs. Og nú, í gegnum viðburði, erum við glöð að geta boðið þér aðgang að umfangi þess kerfis.
Fáðu fyrsta viðburðinn þinn tilbúinn til að deila í biblíuappinu á innan við tíu mínútum. Allt sem þú þarft er Mac eða PC og ókeypis YouVersion reikning.