YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 1

1
Ættartala
1Ættartala Jesú Krists, sonar Davíðs, sonar Abrahams. 2Abraham gat Ísak, Ísak gat Jakob, Jakob gat Júda og bræður hans. 3Júda gat Peres og Sara við Tamar, Peres gat Esrom, Esrom gat Ram, 4Ram gat Ammínadab, Ammínadab gat Nakson, Nakson gat Salmon, 5Salmon gat Bóas við Rahab og Bóas gat Óbeð við Rut. Óbeð gat Ísaí 6og Ísaí gat Davíð konung.
Davíð gat Salómon við konu Úría, 7Salómon gat Róbóam, Róbóam gat Abía, Abía gat Asaf, 8Asaf gat Jósafat, Jósafat gat Jóram, Jóram gat Ússía, 9Ússía gat Jótam, Jótam gat Akas, Akas gat Esekía, 10Esekía gat Manasse, Manasse gat Amos, Amos gat Jósía. 11Jósía gat Jekonja og bræður hans á tíma útlegðarinnar í Babýlon.
12Eftir útlegðina í Babýlon gat Jekonja Sealtíel, Sealtíel gat Serúbabel, 13Serúbabel gat Abíúd, Abíúd gat Eljakím, Eljakím gat Asór, 14Asór gat Sadók, Sadók gat Akím, Akím gat Elíúd, 15Elíúd gat Eleasar, Eleasar gat Mattan, Mattan gat Jakob 16og Jakob gat Jósef, mann Maríu, en hún ól Jesú sem kallast Kristur.
17Þannig eru alls fjórtán ættliðir frá Abraham til Davíðs, fjórtán ættliðir frá Davíð fram að útlegðinni í Babýlon og fjórtán ættliðir frá útlegðinni til Krists.
Fæðing Jesú
18Fæðing Jesú Krists varð á þennan hátt: María, móðir hans, var föstnuð Jósef. En áður en þau komu saman reyndist hún þunguð af heilögum anda. 19Jósef, festarmaður hennar, sem var valmenni,#1.19 Orðrétt: réttlátur. vildi ekki gera henni opinbera minnkun og hugðist skilja við hana í kyrrþey. 20Hann hafði ráðið þetta með sér en þá vitraðist honum engill Drottins í draumi og sagði: „Jósef, sonur Davíðs, óttast þú ekki að taka til þín Maríu, heitkonu þína. Barnið, sem hún gengur með, er af heilögum anda. 21Hún mun son ala og hann skaltu láta heita Jesú því að hann mun frelsa lýð sinn frá syndum hans.“
22Allt varð þetta til þess að rætast skyldi það sem Drottinn lét spámanninn boða: 23„Sjá, yngismær mun þunguð verða og fæða son og lætur hann heita Immanúel,“ það þýðir: Guð með oss.
24Þegar Jósef vaknaði gerði hann eins og engill Drottins hafði boðið honum og tók konu sína til sín. 25Hann kenndi hennar ekki fyrr en hún hafði alið son. Og hann gaf honum nafnið JESÚS.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy