YouVersion Logo
Search Icon

Efesusbréfið 4

4
Vaxtartakmark Krists fyllingar
1Ég, bandinginn vegna Drottins, áminni ykkur þess vegna um að hegða ykkur svo sem samboðið er þeirri köllun sem þið hafið hlotið. 2Verið í hvívetna lítillát og hógvær. Verið þolinmóð, langlynd, umberið og elskið hvert annað. 3Kappkostið að varðveita einingu andans í bandi friðarins. 4Einn er líkaminn og einn andinn eins og Guð gaf ykkur líka eina von þegar hann kallaði ykkur. 5Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, 6einn Guð og faðir allra, sem er yfir öllum, með öllum og í öllum.
7Sérhvert okkar þáði af Kristi sína náðargjöf. 8Því segir ritningin: „Hann steig upp til hæða, hertók fanga og gaf mönnunum gjafir.“ 9En „steig upp“, hvað merkir það annað en að hann hefur einnig stigið niður í undirdjúp jarðarinnar? 10Sá sem steig niður er og sá sem upp sté, upp yfir alla himna til þess að fullna allt. 11Og frá honum er sú gjöf komin að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar. 12Þeir eiga að fullkomna hin heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar, 13þangað til við verðum öll einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, verðum fullþroska og náum vaxtartakmarki Krists fyllingar. 14Við eigum ekki að halda áfram að vera börn sem hrekjast og berast fram og aftur af hverjum kenningarvindi og tæld af slægum mönnum með vélabrögðum villunnar. 15Við eigum heldur að ástunda sannleikann í kærleika og vaxa í öllu upp til hans sem er höfuðið, Kristur. 16Hann tengir líkamann saman og heldur honum saman með því að láta sérhverja taug inna sína þjónustu af hendi, allt eftir þeim krafti sem hann úthlutar hverri þeirra. Þannig lætur hann líkamann vaxa og byggjast upp í kærleika.
Nýtt líf
17Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þið megið ekki framar hegða ykkur eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus, 18skilningur þeirra blindaður og þeir eru fjarlægir lífi Guðs vegna vanþekkingarinnar, sem þeir lifa í, og síns harða hjarta. 19Þeir eru tilfinningalausir og hafa ofurselt sig lostalífi svo að þeir fremja alls konar siðleysi af græðgi.
20En svo hafið þið ekki lært að þekkja Krist. 21Jesús er sannleikurinn og ég veit að þið hafið heyrt um hann og verið frædd um hann: 22Þið eigið að hætta hinni fyrri breytni og afklæðast hinum gamla manni sem er spilltur af tælandi girndum 23en endurnýjast í anda og hugsun og 24íklæðast hinum nýja manni sem skapaður er í Guðs mynd og breytir eins og Guð vill og lætur réttlæti og sannleika helga líf sitt.
25Leggið því af lygina og talið sannleika hvert við sinn náunga því að við erum hvert annars limir. 26Ef þið reiðist þá syndgið ekki. Sólin má ekki setjast yfir reiði ykkar. 27Gefið djöflinum ekkert færi. 28Hinn stelvísi hætti að stela en leggi hart að sér og geri það sem gagnlegt er með höndum sínum svo að hann hafi eitthvað að miðla þeim sem þurfandi er. 29Látið ekkert fúkyrði líða ykkur af munni heldur það eitt sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gerist, til þess að það verði til góðs þeim sem heyra. 30Hryggið ekki Guðs heilaga anda sem þið eruð innsigluð með til endurlausnardagsins. 31Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt ykkur og alla mannvonsku yfirleitt. 32Verið góðviljuð hvert við annað, miskunnsöm, fús til að fyrirgefa hvert öðru eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið ykkur.

Currently Selected:

Efesusbréfið 4: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy